Hvernig býð ég fólki í SplitEase-hóp?

Hver hópur er með boðskóða. Allir sem hafa kóðann, tengilinn eða QR-kóðann geta gengið í hópinn í SplitEase-appinu.

Skref

  1. Opnaðu hópinn og ýttu á heiti hópsins eða ⋯-hnappinn efst til að opna Stillingar hóps (Group settings).
  2. Finndu spjaldið Boðskóði (Invite code).
  3. Ýttu á Afrita tengil (Copy link) til að afrita boðstengilinn, eða ýttu á Deila (Share) til að sýna QR-kóða og senda boðið með hvaða appi sem er í símanum.

Stjórnendur hópa geta líka ýtt á Bæta við meðlimum (Add members) til að bæta beint við vinum sem nota nú þegar SplitEase.

Boðskóðar geta runnið út. Ef kóði hættir að virka skaltu deila nýjum af sama skjá.

SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.

Tengdar spurningar

Vantar þig enn aðstoð?

Skrifaðu okkur og manneskja úr SplitEase-teyminu svarar þér.

Hafa samband við þjónustuver
Tungumál: Íslenska