Hvernig geng ég í hóp með boðskóða eða tengli?
Ef einhver sendi þér boðstengil skaltu opna hann í símanum og SplitEase bætir þér í hópinn. Ef þú ert ekki enn skráð(ur) inn gengur þú í hópinn um leið og þú skráir þig inn.
Skref
- Ýttu á Ganga í hóp (Join) á flipanum Heim (Home).
- Sláðu inn boðskóðann og ýttu á Ganga í hópinn (Join Group).
- Eða ýttu á Skanna QR-kóða (Scan a QR code) til að skanna QR-kóða hópsins, eða á Líma boðstengil (Paste an invite link) ef þú afritaðir tengilinn.
Ef kóðinn virkar ekki gæti hann hafa runnið út. Biddu þann sem bauð þér um nýjan.
SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.