Hvernig skrái ég útgjöld?

Skráðu útgjöld þegar einhver greiðir fyrir eitthvað sem hópurinn deilir. SplitEase uppfærir stöðu allra um leið og þú vistar.

Skref

  1. Ýttu á + hnappinn í miðri flipastikunni, eða opnaðu hóp og ýttu á Skrá útgjöld (Add expense).
  2. Athugaðu hópinn efst og sláðu svo inn Upphæð (Amount) og fyrir hvað útgjöldin voru.
  3. Undir Greitt af (Paid by) velur þú hver greiddi.
  4. Undir Skipting (Split) velur þú hverjir deila kostnaðinum og hvernig. Sjálfgefið er að skipta jafnt.
  5. Ýttu á Vista (Save).

SplitEase stingur upp á flokki út frá lýsingunni. Þú getur breytt honum áður en þú vistar.

Til að greiða í öðrum gjaldmiðli skaltu ýta á gjaldmiðilstáknið við hliðina á upphæðinni.

SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.

Tengdar spurningar

Vantar þig enn aðstoð?

Skrifaðu okkur og manneskja úr SplitEase-teyminu svarar þér.

Hafa samband við þjónustuver
Tungumál: Íslenska