Hvernig set ég upp endurtekin útgjöld?
Endurtekin útgjöld eru sjálfkrafa skráð í hópinn á sínum degi og skipt eins og þú stilltir þau. Það er hluti af SplitEase+.
Skref
- Opnaðu hópinn og síðan Stillingar hóps (Group settings).
- Ýttu á Endurtekin útgjöld (Recurring expenses) og síðan á Bæta við (Add).
- Sláðu inn upphæðina, hver greiðir og hvernig er skipt, og veldu svo hversu oft útgjöldin endurtaka sig: daglega, vikulega, mánaðarlega eða árlega.
- Ýttu á Vista (Save).
Til að sleppa einu skipti opnar þú endurteknu útgjöldin og ýtir á Sleppa næsta skipti (Skip the next occurrence). Áætlunin heldur svo áfram eins og venjulega.
SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.