Ég fékk ekki staðfestingarkóðann frá SplitEase

SplitEase skráir þig inn með 6 stafa kóða sem er sendur með SMS í símanúmerið þitt.

Skref

  1. Athugaðu hvort númerið á skjánum sé rétt. Ef ekki, ýttu á Breyta (Change) og sláðu það inn aftur.
  2. Bíddu í eina mínútu. Skilaboð geta tafist í farsímakerfinu.
  3. Ýttu á Fékkstu hann ekki? (Didn't get it?). Eftir 60 sekúndur verður Senda aftur núna (Resend now) í boði. Ýttu á það til að fá nýjan kóða.
  4. Gakktu úr skugga um að síminn sé með samband og loki ekki á skilaboð frá óþekktum sendendum.

Eftir of margar tilraunir ertu beðin(n) um að bíða í nokkrar mínútur áður en þú reynir aftur.

Enn enginn kóði? Hafðu samband við okkur og gefðu upp símanúmerið sem þú notaðir.

SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.

Tengdar spurningar

Vantar þig enn aðstoð?

Skrifaðu okkur og manneskja úr SplitEase-teyminu svarar þér.

Hafa samband við þjónustuver
Tungumál: Íslenska