Hvernig geri ég upp við einhvern?
SplitEase heldur utan um hver skuldar hverjum en sér ekki um greiðslur. Greiddu hinum aðilanum eins og þú ert vanur eða vön og skráðu það svo í appinu svo staða beggja uppfærist.
Skref
- Opnaðu hópinn og ýttu á Gera upp (Settle up).
- Ef þú greiddir einhverjum ýtir þú á Skrá greiðslu (Record payment) við nafn viðkomandi, athugar upphæðina og staðfestir. Þú getur líka skráð hluta af því sem þú skuldar.
- Ef einhver greiddi þér ýtir þú á Merkja sem móttekið (Mark as received) við nafn viðkomandi og staðfestir.
Til að sjá fyrri greiðslur ýtir þú á Saga (History) á sama skjá.
SplitEase-appið er ekki enn til á íslensku. Heitin innan sviga eru ensku hnappaheitin sem þú sérð á skjánum.